<$BlogRSDURL$>
Hnignunarspegill mannkyns
Wednesday, January 26, 2005
  Halló!

Réttu megin

Það skiptir engu máli þó 90% þjóðarinnar hafi verið á móti innrásinni. Það skiptir ekki máli þó aðeins Dabbi og Halldór tóku saman ákvörðun um að styðja innrásina. Forsendurnar fyrir innrásinni reyndust argasta þvæla, en það skiptir reyndar engu máli. Það skiptir ekki máli þó ein ástæða innrásarinnar sé í raun peningar og olía. Ég nenni ekki að telja fleira upp sem skiptir ekki máli.

Það sem skiptir máli er það að við stöndum við hlið þess sterkari. Siðferði og hvað þá lög og annað slíkt er algert aukaatriði.

Ég hlakka hinsvegar ekki til þess þegar dæmið snýst við. Slíkt hefur nú gerst í veraldarsögunni. Þá gæti staðfesta Dabba og Halldórs komið mér og fleirum blásaklausum sálum í koll. En það kemur nú ekki til með að skipta miklu máli í huga hins sterka þá stundina....er það nokkuð?

Bless!
 
Wednesday, January 19, 2005
  Halló!

Ég er afar illa fallinn til þess að vinna heiðarlega vinnu. Því hefi ég ákveðið að gerast kennari.


Bless!
 
Ég hefir ákveðið að taka þátt í blogg-bólunni miklu. Gott ef ég fer ekki og versla mér dísel-gallabuxur og það skítugar á morgun. Ég ráðlegg öllum að lesa ekki þetta blogg, enda verður það vafalítið hundleiðinlegt og neikvætt..eða svo munu grænu kallarnir vafalaust segja...

TENGLAR
Konni B.
Guðni hinn Græni
Guðni hinn Rauði
Risinn á í mökum við hús
Diddzerinn brósi
Skítkast frá Hjalla snillíngi
Jói varpar ljósi á allt og alla
Sjóræninginn Mr.Jones
Sá betri!
Baldur bloggar!


ARCHIVES
01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 10/01/2004 - 11/01/2004 / 11/01/2004 - 12/01/2004 / 12/01/2004 - 01/01/2005 / 01/01/2005 - 02/01/2005 / 02/01/2005 - 03/01/2005 / 03/01/2005 - 04/01/2005 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 05/01/2005 - 06/01/2005 / 06/01/2005 - 07/01/2005 / 08/01/2005 - 09/01/2005 / 10/01/2005 - 11/01/2005 /


Powered by Blogger Weblog Commenting by HaloScan.com