<$BlogRSDURL$>
Hnignunarspegill mannkyns
Thursday, June 02, 2005
  Halló!

Sérstæður árangur

Ég lá fyrir framan sjónvarpið rétt áðan og horfði á Skjá Einn. Nýr þáttur sem ber Séð og heyrt-nafnið ,,Sjáumst með Silvíu Nótt" var að hefja göngu sína. Þrem sekúndum eftir að þátturinn byrjaði mátti ljóst vera að Silvía Nótt hafði slegið hraðamet í því að sanna það fyrir sjálfum sér og öðrum að hún væri fífl, og/eða alveg sérstaklega leiðinleg.

Þar sem ég er afar sanngjarn maður gaf ég Silvíu séns og gaf henni 27 sekúndur til að sýna fram á að fyrrnefnd niðurstaða mín um hana byggði á misskilningi - að hún hafi aðeins verið að þykjast og leikhæfileikar hennar hafi blindað mig.

Neibb. Það tókst Silvíu ekki á þessum 27 sekúndum. Til hamingju Silvía - þú átt hraðamet sem erfitt verður að bæta. Nú getur þú án vandræða haldið því fram að þú sért góð í einhverju!

Bless! 
Ég hefir ákveðið að taka þátt í blogg-bólunni miklu. Gott ef ég fer ekki og versla mér dísel-gallabuxur og það skítugar á morgun. Ég ráðlegg öllum að lesa ekki þetta blogg, enda verður það vafalítið hundleiðinlegt og neikvætt..eða svo munu grænu kallarnir vafalaust segja...

TENGLAR
Konni B.
Guðni hinn Græni
Guðni hinn Rauði
Risinn á í mökum við hús
Diddzerinn brósi
Skítkast frá Hjalla snillíngi
Jói varpar ljósi á allt og alla
Sjóræninginn Mr.Jones
Sá betri!
Baldur bloggar!


ARCHIVES
01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 10/01/2004 - 11/01/2004 / 11/01/2004 - 12/01/2004 / 12/01/2004 - 01/01/2005 / 01/01/2005 - 02/01/2005 / 02/01/2005 - 03/01/2005 / 03/01/2005 - 04/01/2005 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 05/01/2005 - 06/01/2005 / 06/01/2005 - 07/01/2005 / 08/01/2005 - 09/01/2005 / 10/01/2005 - 11/01/2005 /


Powered by Blogger Weblog Commenting by HaloScan.com